One must desire something to be alive

19.03.2009 11:22:44 / tintin

Beautiful bunch of ripe banana...

Daaaayyy - oooooooo!! Alveg brilliant lag haha! Smá brot hérna:
Brot úr Beetlejuice..


Jájá, þetta er ágætt! Allt það besta að frétta af mínum bæ annars. Er komin með vinnu á splunkunýrri snekkju, rétt árs gömul.. ekki slæmt það. Byrja 20.apríl, þannig að það er bara mánuður sem maður á eftir í eintómu frelsi ef svo má segja. Við Ruf ætlum til DK til mömmu 1.apríl og vera þar í ca 10 daga, þá fer hann aftur á Leander í 8-9 vikur meðan báturinn er í slippnum. Úfff, það á eftir að vera erfitt að fara í burtu í svona langan tíma, en hey, það er ekki á allt kosið. Svona er þetta bara! En allavega, nýi báturinn minn bauð honum að sækja um vinnu hjá sér, þetta hljómar skrýtið! Ég var eiginlega búin að segja nei takk - sagði þeim að ég vildi ekki binda mig neitt of lengi og hélt að þá væri ég ekki lengur með í leiknum en þau hringdu aftur í mig og spurðu hvort ég vildi ekki hugsa þetta aaaaðeins betur og kannski gæti ruf bara komið með mér!! En þar sem hann er upptekinn í sumar þá er það ekki að gerast. Kannski í haust, við sjáum til! Báturinn er á Ítalíu núna,en ég býst við að heimahöfnin verði á Möltu, og þetta er einksnekkja þannig að þetta verður kannski ekki jafn hektískt og Leander var! Já, nóg um það.

Malta..

Veðrið hérna í Dartmouth er annars orðið frekar gott, það er bara hlýtt þegar sólin skín! Ég er sátt!

Jájá, endilega kvittið fyrir komu ykkar, þetta er nóg af fréttum frá mér í bili. Ég verð svo kannski enn duglegri í sumar! ;)

ást og friður                   -tin-


» 5 hafa sagt sína skoðun


MY Leander
Art