Duglega ég að koma með sjöunda bloggið mitt í nóvember. Ég á
nefninlega að vera að læra.. ræíræíræ..heimapróf, verkefni og
ritgerð. Sem vonandi verður nú allt saman frá á mánudaginn. Annars
er ég fallin. ...með 4,9, eitt hræðilega skiptið enn.. ég býð fram
extra-tyggjópakka handa þeim sem kann þetta lag. Spurning hvort ég
skrifi um Hring eða Hrein. Er búin að ákveða að velja á milli
þeirra tveggja því þeir heita skondnum nöfnum.
Ég er búin að ná þessu loksins og hef ákveðið að deila því með
umheiminum. Stund sannleikans og opinberunar og við heyrum
trommuslátt í fjarska. Ég var Janis Joplin. Það passar alveg.
Allt mitt líf hef ég staðið eins og sjö fílar á því
að ég hafi verið á Woodstock og ég var hippi og ég dó úr of stórum
skammti eiturlyfja. Sorry, þetta er bara staðreynd. Það
er bara alemmn þekking og hver heilvita maður þarf ekki að láta
segja sér það. En svo loksins tengdi ég. Ljósaperan sprakk næstum
því, svo mikil var uppljómunin. Málið er sko að í fyrra
lífi dó ég stuttu eftir Woodstock, sem voru þeir allra
bestu tónleikar sem ég hef farið á. Og þetta passar alveg við
Janis. Ókei kannski ekki stuttu eftir, meira svona ári
eftir, en það er stutt ef maður hugsar það í fortíðinni. Hún
Janis mín kom fram á Woodstock 1969 og dó svo úr of stórum
skammti 1970. Ég veit þetta bara. Þetta smellur allt. En það
er því miður ekki hægt að gera neinar rannsóknir, á neinn hátt, því
hún var brennd og öskunni dreift í Kyrrahafið. Fjúkk að ég fann út
úr þessu. Til að staðfesta allt saman enn betur: Janis
Joplin er JJ - ég er TT.. Kosmískt..
Þess vegna drekk ég líka Southern Comfort. Það var
trademark-drykkurinn hennar. En ég er að sjálfsögðu ekki í neinu
eiturlyfjarugli. Maður fellur ekki tvisvar í sömu gryfjuna. Ó nei
Hósei.
Þannig að í tilefni opinberunnar minnar eru tvö lög dagsins.
Annað er að sjálfsögðu ég í fyrra lífi aka Janis Joplin með hið
sívinsæla og undurljúfa lag Kris Kristofferson, Me & Bobby
McGee : http://youtube.com/watch?v=BjtfGvFFt48
Það er ekki beint video með því, bara eitthvað slideshow, en þá er
bara um að gera að einbeita sér betur að laginu.
Hitt lagið er White Rabbit með Jefferson Airplane. http://youtube.com/watch?v=LbpTKaYaNmw
Merkilegt nok með þetta lag þá hefur það verið mikið notað í
kvikmyndum og herferðum gegn dópi en svo líka í Simpsons, Futurama
og auglýsingu frá No.7 snyrtivörufyrirtækinu. Lagið fjallar
bæði um, eftir því sem ég best veit, áhrfi LSD og söguna um
Lísu í Undralandi. Söngkona Jefferson Airplane vildi meina að lagið
ætti að áhrif blautrar tusku í andliti foreldra sem lásu
alls kyns sögur, líkt og söguna um Lísu, fyrir börnin
sín. Lísa notaði víst einhver drug-like efni til að breyta sér. Svo
eru foreldra eitt stórt spurningamerki þegar börnin vaxa úr grasi
og eru svo bara í ruglinu. Hvað um það, þetta ótrúlega flotta lag
var fyrsta lagið sem náði að skjóta sér fram hjá ritskoðun
útvarpsins. Sem betur fer. Takið líka eftir glotti söngkonunnar, þó
að gæði myndbandsins séu ekki þau bestu. Mér finnst hún
töff.
Fróðleiksmolar dagsins voru í boði mín. Ég er alveg gáfuð, ég
kýs bara að deila ekki gáfum mínum með almenningi eins og um
súrefni sé að ræða. P.S. ég ákvað svo líka að breyta útliti
síðunnar og hafa SingStar þema.. ekki annað hægt þegar síðan mín er
annars vegar..
-TT aka JJ-