Ekki laust við smá Black Sabbath fíling svona
rétt eftir miðnætti á miðvikudagskvöldi þegar maður er komin með
upp í kok á verkefnavinnu sem ætlar engan endi að taka. Kannski
er ég bara ekki nógu öguð. Maður er ekki alveg með þetta á
hreinu lengur. Endilega hlustið á þetta skemmtilega lag
http://youtube.com/watch?v=NPWLIGqHJzs
(ég er búin að ákveða að ég ætla ekki að læra þessa "ýta hér"
thingy-tækni) Hvað um það, þetta er voða fallegt lag um
djöfulinn sem verður ástfanginn og umbreytist bara í góða
manneskju
Andri sagði mér að hætta að væla. Maður á alltaf að
taka mark á Andra og því ákvað ég að skella inn færslu, svona af
því ég er að læra. Svo luma ég líka á helvíti skemmtilegri sögu af
henni ömmu minni. Hún er bara fyndin. Amma sko. Ég skutlaðist
til hennar um daginn til að fá lánaða bók og áður en ég labba inn
um dyrnar heyri ég hana segja að ég kæmi eins og kölluð. Nú, segi
ég.. jájá hvað er ekki allt í góðu? Þá fer amma að býsnast yfir
vidjóinu (hún er sko ein af þeim sem prjónar, eldar og fær
heimsóknir á kvöldin þannig að hún tekur bara upp dagskránna í
sjónvarpinu og horfir svo á hana á næturnar.. hún er klók sú gamla!
Vonum að handrukkar sjónvarpsins mæti ekki á svæðið samt..)
Allavega, svo ég spyr hvað sé að tækinu því ég er jú soddan
tæknigúrú eins og fólkið mitt veit hehe.. allavega segist
hún ekki geta kveikt eða slökkt á því en það var nú bara kveikt á
því. Þá segist hún ekki geta náð spólunni úr tækinu, svo ég
kíki inn í tækið en þar er bara engin spóla en amma mín
er sko viss um það og segir mér að stinga
bara hendinni inn í .. "en amma mín, ég sé alveg inn í
tækið, það er engin spóla þarna." "Nú jæja, þá set ég þessa bara í.
Ertu búin að borða eitthvað í dag?" Þetta er kannski
fyndnara ef maður heyrir þetta.. erfitt að skrifa svona samtöl..
amma er samt svöl.
Ég fór aðeins inn í vinnu í dag og nema hvað, ég lenti bara í
því að afgreiða eina á spænsku! Rosa klár
Svo fór ég í Body Shop
af því ég var sko heima að læra.. mætti þá ekki konan sem ég
afgreiddi inn í búðinni minni bara þangað
líka. Greyið lenti í einhverjum samskiptaörðuleikum við
afgreiðlsukonuna þar og leit því á mig, alveg ráðalaus, þannig að
góða ég útskýrði fyrir stelpunni hvað hún væri að biðja um. Díos
mío, klárlega góðmennska dagsins og strikar út öll prakkarstrik eða
illskuverk sem ég hef óvart framið á síðustu vikum
Pottþétt.
Band dagsins: http://www.myspace.com/chansonspoissons
Kúl. Líka sætur Frakki..
Planið mitt um jólin er að fara til mömmu og svo með henni til
Andra og vera yfir hájólin í Ungverjalandi. Koma svo heim 29. eða
30. des ásamt yndislegri móður minni og fagna komu nýs árs á landi
ísa og elda í faðmi fjölskyldu og vina. Ýkt rómó.
Myndarlegt blogg hér á ferð..Allir sáttir?
Buenos
noches amigos y muchos besos para todos XX
-spænska bólan-