..hæhó og jibbý jei og jibbí og jei, það er kominn 17. júní...

Þetta er örugglega algengasta setningin á þessum degi og er
ábyggilega skrifuð á ÖLL blogg!! En það er bara gaman!
Ég eignaðist næstum því nýjan vin hérna um daginn. En ég er svo
mikil tík að ég hleypti honum ekki inn, sama hvað hann hamaðist á
glugganum. Ég meina, ég var að fara að sofa. Vil ég þá eitthvað
vera að fá inn til mín risastórt fiðrildi og láta það halda fyrir
mér vöku? Þannig að það flaug í burtu þegar það náði hintinu og
hefur ekki látið sjá sig aftur.
En það helsta í fréttum er að Michael Jackson er not guilty of all
10 charges. Sem er vel. Það væri nú frekar óþægilegt að vera að
djamma og dilla sér svo við lög eftir hann en vita að hann hefði
misnotað stráka. Þannig að ég er fegin, nú get ég dansað
áhyggjulaust. Já, mér finnst hann eiga skemmileg danslög!
Svo er hann dáinn, 105 ára, breski maðurinn sem hélt upp á 80 ára
brúðkaupsafmæli sitt um daginn... sorglegt það. En ekki svo..ég
meina 105 ára! Litla rúsínan!!

Megi hann hvíla í friði
Það sem mér finnst samt fyndnast er að nú er tónlist Christinu
Aquilera notuð til að pynta fanga í fangabúðum. Vafasamur heiður
fyrir hana þar á ferð...
Svo get ég sagt ykkur eitt. Um daginn þegar ég var að bíða eftir
lestinni, í svona ca 15 mínútur, flugu örugglega (rúmlega) 30
flugvélar yfir höfði mér sem allar voru að fara að lenda eða fljúga
frá Heathrow. Ok það virkar kannski ekki rosalega mikið, en
air-traffíkin er mjög mikil og það eru alltaf flugvélar að fljúga
hérna yfir (mér finnst það reyndar ansi kósý verð ég að segja!) en
ef maður pælir í því að það eru 30 á 15 mín þá gera það 2 á mínútu.
Og betra en það... 1 flugvél every 30 seconds..... það hljómar
einhvernvegin miklu meira..!!?

Nema ég sé að
kolklikka...einhvernvegin áttum við aldrei samleið, ég og
stærðfræðin...
Jæja elskurnar, ég er farin að eyða 17. júní á þann skemmtilegasta
hátt sem ég hefi nokkurn tíman gert...með því að þrífa húsið....

Kannski verður samt eitthvað gert í kvöld...við sjáum til!! Þið
hafið það bara gott! Og munið að fá ykkur eina íslenska SS með öllu
og kók fyrir mig í dag... og já þessi bjór sem þú hefur ekki gott
af má vera drukkinn fyrir mig! Friðaðu samviskuna!!
P.S. Andri, takk fyrir mailið!! Góður!!

Ég ætla
sannarlega að stunda pöbbana meira!
AlíBaba