Djöfull hata ég internet explorer...

Ég er að hugsa um að gefa þessari blessuðu síðu vetrarfrí..svona
eins og krakkar fá í skólum. Við erum komnar með leið á hvor
annari, ég og síðan. Ég er gjörsamlega andlaus og hef ekkert að
segja, hvorki merkilegt né ómerkilegt. Bloggið sem ég var að skrifa
núna rétt áðan var greinilega svo leiðinlegt að síðan eyddi því
sjálf út. En ég geri aðra tilraun, svona í kveðjuskyni! Ég get ekki
einu sinni bullað. I've lost it.
Nú er það ekki lengur spurning hvort ég eigi að flytja til Køben
heldur bara hvenær. Eini mínusinn við að flytja er að það er allt
morandi í Íslendingum þarna, sem er ekki hipp og kúl. En allt annað
við borgina er það hins vegar. Plús það að mamma býr þarna. Og ja,
jeg kan godt snakke dansk så det skal ordne sig..

jeg ved godt nok að rådhuspladsen ikke ser sådan
ud i dag.. billeden er siden 1913!
Svo er ég að fara til London 3.nóvember í viku að
sækja restina af dótinu mínu og hitta allt fólkið mitt aftur 

Það er bara of gaman í London. Borgin mín.
Meira af útlöndum. Dagmar mín er að koma heim frá
Frakklandi á föstudaginn sem er bara hægt að gleðjast yfir
jibbí...
Og enn meir af útlöndum..eða meira skilaboð til
útlanda.. Elsku Maríanna! Takk fyrir kveðjurnar
Ég hugsa svo oft
til ykkar.. og ég verð að fá uppskriftina af pastanu sem ég fékk
hjá ykkur...ég hugsa oft um það og fæ vatn í munninn!! Knúsaðu
litlu frá mér og ég kem sko í heimsókn aftur við tækifæri!!
Ennþá auðveldara ef ég flyt til Köben, og þá get ég fengið mömmu
með 
En eins og ég segi, án þess að búast við miklum
mótmælum er ég með ritstíflu og ætla því að leggjast undir feld í
bili... knús!
-Fr. Ritstífla-