One must desire something to be alive

08.08.2009 21:08:37 / tintin

Anchor me..

Nei hæ!

Bara rétt að lata vita af mér..ef einhver kíkir hér inn. Er að stelast á netið með eigandinn er ekki um borð ! Er semsagt netlaus meðan þau eru um borð og það eru að koma 5 vikur núna! En netið er samt búið að vera niðri síðan ég byrjaði að vinna hérna.

Allt er annars gott, nóg að gera. Erum búin að vera mest á Ítalíu, í Livorno, en erum núna búin að krúsa um frakkland og ítalíu. Gengur ágætlega - nóg að gera og lítið svefn, hvað þá líf!

Ég stelst kannski inn aftur seinna, við sjáum hvað framtíðin ber með sér! Endilega látið heyra í ykkur xx elsk tinna x


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 11:22:44 / tintin

Beautiful bunch of ripe banana...

Daaaayyy - oooooooo!! Alveg brilliant lag haha! Smá brot hérna:
Brot úr Beetlejuice..


Jájá, þetta er ágætt! Allt það besta að frétta af mínum bæ annars. Er komin með vinnu á splunkunýrri snekkju, rétt árs gömul.. ekki slæmt það. Byrja 20.apríl, þannig að það er bara mánuður sem maður á eftir í eintómu frelsi ef svo má segja. Við Ruf ætlum til DK til mömmu 1.apríl og vera þar í ca 10 daga, þá fer hann aftur á Leander í 8-9 vikur meðan báturinn er í slippnum. Úfff, það á eftir að vera erfitt að fara í burtu í svona langan tíma, en hey, það er ekki á allt kosið. Svona er þetta bara! En allavega, nýi báturinn minn bauð honum að sækja um vinnu hjá sér, þetta hljómar skrýtið! Ég var eiginlega búin að segja nei takk - sagði þeim að ég vildi ekki binda mig neitt of lengi og hélt að þá væri ég ekki lengur með í leiknum en þau hringdu aftur í mig og spurðu hvort ég vildi ekki hugsa þetta aaaaðeins betur og kannski gæti ruf bara komið með mér!! En þar sem hann er upptekinn í sumar þá er það ekki að gerast. Kannski í haust, við sjáum til! Báturinn er á Ítalíu núna,en ég býst við að heimahöfnin verði á Möltu, og þetta er einksnekkja þannig að þetta verður kannski ekki jafn hektískt og Leander var! Já, nóg um það.

Malta..

Veðrið hérna í Dartmouth er annars orðið frekar gott, það er bara hlýtt þegar sólin skín! Ég er sátt!

Jájá, endilega kvittið fyrir komu ykkar, þetta er nóg af fréttum frá mér í bili. Ég verð svo kannski enn duglegri í sumar! ;)

ást og friður                   -tin-


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 14:16:11 / tintin

I'm feeling rough, I'm feeling raw, I'm in the prime of my life..

Síðasta helgi var vægast sagt yndisleg. Elskan hún Dagmar 'skutlaðist' í heimsókn alla leið hingað til mín til Dartmouth og ó mæ hvað það var nú ljúft!! Ég vissi nú alveg hvað ég saknaði þín Dagmar, en að ég sé farin að skoða möguleikann á því að koma bara aftur heim - þú hefur tak á mér verð ég að segja!! Takk svoooo mikið fyrir að koma í heimsókn xxxxx Ég skála í Desperados fyrir þig næst þegar ég fer á Market barinn!!

Finnst eins og ég hafi ekki talað um Harry jr í smá tíma, litla gullið hefur það fínt og er vel perky! Hann lifði lestaferðina og flutningana frá London vel af og biður örugglega að heilsa þeim sem vilja!


Ég er ennþá að plana.. haha.. datt í hug hvort ég ætti að skella mér í að læra nudd.. en það er samt svo asskoti dýrt! Tíminn flýgur svo hratt að ég er ekki alveg að trúa því að það sé að koma febrúar. Vægast sagt ótrúlegt. Og mér finnst líka ótrúlegt að ég sé ekki búin að sjá foreldra mína og Andra í rúmlega hálft ár! Er það í boði eða??

Annars er ég nú í góðu yfirlæti hérna og alveg hreint blómstra sem húsfreyja.. hússtjórnarskólinn hvað segi ég nú bara. Rauðköflótta svuntan er partur af day-to-day lúkkinu mínu, og það er kvartað! Ekki yfir dýrindisréttunum sem ég færi fram á silfurfati, heldur því að ég sé alltaf með hana á mér!! Gerði þvílíka afmælisköku fyrir Ruf um daginn, barnaafmæliskaka! Skúffukaka með aðeins of miklu nammi á. Hey, hann bað að fara aðeins over the top og ég hlýði alltaf í einu og öllu.


Ég læt hérna fylgja með eitt gott lag.. ég var búin að gleyma þessu í smátíma og var þvílíkt ánægð þegar ég uppgvötaði það aftur!!
Time To Pretend
Og svo er myspace síða dagsins þessi:

Þá er það held ég barasta komið vel gott í bili! luuuuvvvvv xx
-tin-


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 14:46:33 / tintin

Up and down, I'm up the wall, I'm up the bloody tree...

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár!! Jeij! Merkilega er tíminn fljótur að líða!

Ég er komin til Dartmouth núna .. meðan ég er að plana næsta plan!! hahaha... alltaf með svo mörg plön! Nýársheitið ætti að vera að ég má ekki plana fyrr en ég klára planið sem er í gangi. Og ég er búin með síðasta plan, þannig að það er allt í lagi að plana nýtt. Gott plan!

Hér eru uppáhaldslögin mín þessa stundina hehehe!!! Versigú:
Living On The Ceiling              Never Going Back Again
Seinna lagið er ótrúlega flott í upprunalegri mynd, þeas ekki live, en ég fann bara einn link a það með asnalegu myndbandi, þannig að við skellum okkur bara á tónleika til Japan :)

Sorry Dagmar, þetta er rosa leiðinlegt blogg.. mér er svo kalt á puttunum, get ekki skrifað meir hehe!!
Knús á ykkur sem eruð enn að kíkja hingað inn xxxxx
-tin-


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 18:37:33 / tintin

Moving, just keep moving...

Einhver óþverri náði einhvern vegin að stela kortaupplýsingunum mínum og versla fyrir 300.000 kall í New York og nágrenni.. greinlega verið að kaupa fyrir nýja heimilið sitt því hann/hún/það verlsaði í ikea, homegoods og einhverri annarri verslun sem ég man ekki. Guði sé lof fyrir að kortafyrirtæki geta rekið greiðslur og séð að þetta var ekki mitt ódæðisverk. Ég var ekki sátt. En ég er sátt núna því Borgun er búin að laga þetta fyrir mig. Ég er búin að ákveða að það er einhver að ná sér niðrá mér bara af því að ég er Íslendingur..

Allavega.. allt fínt að frétta annars af mér og mínum.. glókollurinn er kominn til london, loksins verð ég að segja hehe!! Erum búin að hafa það rosa huggulegt, bæði atvinnulaus eins og er og voða kósý hahah!! Harry jr er líka voða kátur, hann fór í pössun yfir helgina, meðan ég skrapp til dartmouth. Ok, kannski ekki um helgina, frá föstudegi til miðvikudags en hey.. hann er kominn heim núna og er þvilíkt kátur og ég er alveg handviss um að hann þekkti okkur!

Styttist þvílíkt í jólin og ég er nokkuð hress með það, litla jólabarnið ég! Veit ekki hvar ég verð ennþá, það kemur allt í ljós. Planið er að vera í dartmouth en það verður nú eiginlega að fara eftir vinnu og svoleiðis.. Andri, mig langar þvílíkt að koma til dk og sjá ykkur mömmu, bílíf jú mí! En við verðum að sjá hvað gerist :)

risa knús á ykkur, farin í bili! elskielsk xxx
-tin-


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 14:09:01 / tintin

For Once In My Life..

Bush sagði: "I know the human being and fish can co-exist peacefully." Þess vegna fékk ég mér gullfisk - hann Harry Jr. hahahaha einmitt!

Ég eiginlega má til með að koma með nokkur glóandi gullkorn frá honum Gogga Runna.. Pissið áður en þið lesið!
"Families is where our nation finds hope, where wings take dream"
"I know how hard it is for you to put food on your family"
"You work three jobs? Uniquely American, isn't it? I mean, that is fantastic that you are doing that" (sagði hann við fráskilda 3-barna móður)
"Too many good docs are getting out of business. Too many OBGYNs aren't able to practise their love with women all across this country"
"They misunderestimated me"
"Rarely is the question asked: Is our children learning?"

Allt í lagi. Ég vona að þið hafið skemmt ykkur jafnvel og hrist hausinn jafnoft og ég þegar ég las þetta!! Bush-ismi dagsins var í boði the londonpaper í gær.

Þetta er í uppáhaldi þessa dagana (ásamt mööörgu öðru!) Smá gamalt og gott, Enjoy!
For Once In My Life
Would I Lie To You

Fór á kóræfingu hérna í gær - hef ekki opnað munninn síðan á síðustu æfingu sem var fyrir 4 árum kannski!! haha.. en það var fínt, verið að syngja jólalög og svona! Ótrúlega fyndið að hitta hóp af fólki sem talar íslensku hhaha!! það mætti halda að ég sé búin að vera í útlegð!

Kalla þetta gott hjá mér að blogga aftur í dag - þar sem ég bloggði nú í gær! Knús á ykkur!

-tin-


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 18:14:52 / tintin

All I want for Christmas is...

Ár og öld já. Eru nokkuð margir sem koma hingað inn hvort eð er?

Allt gott að frétta héðan, fer til Dartmouth á laugardaginn að sækja hinn helminginn og komum aftur á miðvikudaginn og förum þá bæði á kaf í leita að nýjum vinnum. Já, ég er hætt í hinni vinnunni því það kom bara í ljós að það var ekki alveg að borga reikningana og svo langar mig líka bara rosalega að fara að gera eitthvað sem tengist því sem ég vil gera í framtíðinni!! Rosa skrýtið hey!

Svo fer að styttast í jólin og ji minn hvað ég er farin að hlakka til!! Er mikið í jólahugleiðingum þessa dagana, og ákveða hvar ég á að vera og hvenær.. þetta kemur allt í ljós, eins og alltaf !

Er að fara á föstudaginn að sminka fyrir eitthvað fashion show í terminal 5 á heathrow - kennarinn á námskeiðinu spurði hvort ég væri ekki til í að vera memm, we could have a laugh, svo ég noti hennar orð! Ég slæ nú ekki hendinni á móti því. Erum að fara að sminka 10 módel held ég og allt fyrir góðan málstað að sjálfsögðu!

Já, við Harry Jr erum bara hress og teljum niður dagana (og mínúturnar) í að Ruf drullist hingað og joinar okkur í stóra reyknum! Við vonum að sjálfsögðu að þið séuð hress líka, og að viljum endilega heyra frá ykkur!

Riiiisa knús og kossar!
Tin & Harry jr.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 13:06:23 / tintin

You could be happy...

Ég fer að verða búin að koma mér vel fyrir í litlu íbúðinni minni. Harry jr flutti inn í gær sem var mjög gott og gaman. Hann lætur nú lítið fyrir sér fara eins og er, við sjáum hvað gerist þegar á líður.

Ég er komin með vinnu á restaurant/pub á horninu hjá mér. Bara nokkurra mínútna labb, sem er yndislegt! Er þar núna að notfæra mér internetið! Er með fulla vinnu sem waitress.. gat verið!! En hey, það borgar reikningana!

Skólinn gengur fínt og ég sé mig alveg fyrir mér í framtíðinni með myndavélina og meikup burstana á lofti hehe!

Svo kom Ruf til mín síðasta fimmtudag og var hjá mér fram á mánudag, sem var að sjálfsögðu ljúft!! Var hjá mér á afmælinu mínu, sem var á föstudaginn. Fengum þvílíkt gott veður, gátum legið í parkinum í sólbaði og allt! Fórum svo á laugardaginn og sunnudaginn og horfðum á tennis í Wimbledon. Mjög töff! Sáum Andy Murray vinna Austurríki. Fór með finu myndavélina mína og náði nokkrum góðum skotum! :)

Fékk nýjan ipod í afmælisgjöf sem ég er að starta upp.. ótrúlega gaman! Og er að leita að designer því við erum að gera catwalk makeup annaðkvöld... ég er ekki alveg svo mikið með á þeim nótum, þannig að það er smá heimavinna fyrir mig! hehe!

jájá, man ekki mikið meir.. náði í prufuútgáfuna af photoshop.. ef einhver á the real thing til að deila með mér má sá hinn sami hafa samaband hehe!

farin í bili.. ætla að njóta matarins sem ég er að borða - squid salad mmmmmm!! bæjó!

-tin og harry jr-


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 17:26:27 / tintin

I did it my waaayyyy...

Er ad koma mer fyrir i nyju ibudinni minni, og eg vaeri alveg til i ad segja ad eg vaeri ad skrifa tetta tar, en nei. Eg hef ekki buid i Englandi samfleytt sidustu 3 arin og ta ma eg ekki fa internet. En eg ma hins vegar alveg opna bankareikning, reka sima og leigja mer ibud, fara i skola og fleira.. en internet er allt onnur jona! Er ad hugsa um ad tala vid landlordinn og sja hvort hann geti hjalpad mer.

Klaradi fyrsta namskeidid i dag, er tvi makeup artist hahahah!! Vantar bara allar vinkonur minar hingad ut svo eg geti aeft mig meir og haldid ollu vid! Byrja svo a tremur nyjum i naestu viku.. tangad til hef eg ekkert ad gera. Tannig ad eg er ad hugsa um ad leita mer ad vinnu a manudaginn. Eiginlega ekki mikid annad i bodi!

Var otrulega stolt af sjalfri mer um daginn, en eins og vanalega, tegar eg geri eitthvad sem krefst einhvers og eg verd tvilikt stolt og montin af sjalfri mer ta er enginn i kring til ad verda vitni ad stormerku atburdunum. Allavega.. eg var semsagt i trifgallanum med gulu gummihanskana og harid i augunum (semi sveitt) ad trifa (lesist skrubba) badherbergid mitt. Eitthvad hef eg litid litblint a gummihanskana og haldid ad teir vaeru graenir og eg vaeri the incredible hulk tvi tegar eg skrubbadi svona lika klosettsetuna datt hun af. Tannig ad i smastund sat eg a klosettgolfinu med heila klosettsetu i fanginu. Great. Ekki alveg tad sem eg turfti og eg var eiginlega alveg vid tad ad gefast upp a ollu, tegar eg fekk yfir mig svona moment og eg sa ljosid og var alveg viss um ad eg gaeti bara lagad tetta. Sko mina (eins og i Stellu i Orlofi), eg kom helv.. setunni aftur a kloid og hun situr nuna pikkfost. Aetladi svo ad snua mer vid og kalla a einhvern til ad koma og sja og mundi svo ad eg var alein og enginn til ad verda vitni ad trekvirkinu. Synd. En eg trui mer sjalfri tannig ad tad er allt i lagi.  God klosettsaga.

I fyrradag sa eg annan brodurinn ur Oasis og konuna hans. Hun labbadi naestum tvi a mig. Bitch. Hun nadi meira ad segja augnkontakt vid mig (ekki ofugt).

Jaja.. mer leidist ekkert sma mikid ad sitja inn a svona netkaffi ad eg aetla ad kalla tetta gott. Tid megid endilega hringja i mig ef tid viljid spjalla.. islenska nr er ennta opid ;) riiiisaknus og p.s Sigriudur asa, til hamingju med afmaelid i dag xxx

                                              -the makeup artist-


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 11:18:17 / tintin

he's venus as a boy..

Búinn að vera heljarinnar mánuður hjá mér fjúúfff.. Kíkti til mömmu í lok júlí og ætlaði að fara heim til Íslands 1.ágúst og vera þar til 10. en þau plön breyttust smá þegar ein sem ég vann með á snekkjunni hringdi og bráðvantaði þernu á seglskútuna sem hún er á núna. Vinnan sem hún bauð var 9 dagar, frá palma til corfu með stoppi í sardiniu og það hljómaði bara eiginlega of vel til að sleppa! Eigandinn og konan hans voru bara yndisleg. Þau buðu okkur út að borða í Sardiníu og þar komst ég að því að þau eiga ca 12 hús, bát, flugvél, þyrlu og líka nokkur picasso og nokkur dalí verk upp á vegg. Er það í boði?? En hey, þetta var gaman :)

Þannig að allt endaði á að ég flaug frá Corfu eldsnemma á laugardagsmorgni til Sviss og þaðan til Kaupmannahafnar. Gat hitt mömmu í smá stund sem var auðvitað voða hyggeligt! Átti svo flug með IcelandExpress um kvöldið, kl hálftíu en því var seinkað til 6 morguninn eftir.Já sæll, já fínt. Ég var ekki beint sátt því ég ætlaði að djamma heima og eiga allan sunnudaginn til að pakka og hangsa og svona, því svo átti ég annað flug kl 7 á mánudagsmorguninn til Englands. Ó mæ.. hef sjaldan verið jafn þreytt eins og á mánudagskvöldinu þegar ég var loksins komin til Dartmouth!
Og ég hef ekki ennþá fengið neina útskýringu eða afsökun frá IcelandExpress. Eitthvað annað en Sterling, sem ég elska !

Er vonandi að verða búin að finna íbúð, fer til london á mánudaginn og geng vonandi frá málum því skólinn byrjar svo 3.sept. Spennó spennó!

Datt inn í Næturvaktina þegar ég var hjá mömmu. Mikið ótrúlega finnst mér þetta fyndið!

Er að hugsa um að hlaða inn nýjum myndum í myndaalbúmin. Bý til nýtt albúm þannig að það ætti ekki að fara fram hjá neinum ef það kemur inn!

Vona að allir hafi það gott.. það væri yndislegt að heyra frá einhverjum! Og hey, ég er komin með nýtt enskt númer.. ef einhver vill, þá vinsamlegast hafðu samband!

Luuv                                       -tin-



» 7 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 17:39:44 / tintin

When you go on your summer vacation You go to Juan-les-Pines..


Nei eg er reyndar ekki i Juan les Pines - eda frakklandi . Eg er eins og er i dartmouth, og hef tad barasta fint. Buin ad vera herna i rumar tvaer vikur already.. timinn flygur sko. Er samt buin ad boka flug til dk og svo heim a klakann i stutt stopp. Ji hvad madur er international eitthvad haha. Verst ad eg a ekki mina eigin flugvel. Er buin ad finna flug aftur til uk en ekki buin ad boka enn. planid er ad vera tar adeins i haust og virkja heilabuid adeins lett litillega! kemur allt i ljos.

Annars eru nu orugglega ekki margir sem koma enn herna inn, en eg buin ad akveda ad verda aftur dugleg herna inni. Tad er nu alltaf haegt ad koma med sogur fra london, ikke?!

Annars a eg litla sogu.. eda meira svona eg get deilt med ykkur undrun minni. Um daginn, tegar eg var i stuttu stoppi heima, braut eg heimilisskaerin - ja tad gerist -  allavega, naest tegar eg for ad versla i bonus mundi eg eftir brotnu skaerunum. Svo eg labba hringinn i kringum bonus eins og bjani en finn engin. Tannig ad eg spyr bonusgaejann en hann horfir bara a mig og stadfestir grun minn. eg er bjani - enginn skaeri i bonus. (kannski af tvi tau eru vopn? nei, tad er i englandi..hmmm...) Nu, tannig ad eg rolti yfir i Egg - tar er ju allt til heimilisins, nema skaeri. I rumfatalagerinn arka eg, en sama sagan tar. Tau voru ad klarast greinilega! Ta er ekki mikid annad i bodi en ad rolta yfir i smaralind og eg fer i hagkaup. jesss finn skaeri, a 2000 kronur. Er ekki i lagi eda? Ekki alveg til i ad eyda svoleidis dasamlegri upphaed, tannig ad eg held leitinni afram. Get svarid fyrir tad, tetta var farid ad likjast meira paskaeggjaleit en ekki skaeraleit. Fer i Byggt&Buid og detti mer nu allar daudar... fann tar tessi svaka finu skaeri a 500 kall. Keypt og malid leyst. Svo tegar eg kem heim deili eg tessari lika svaka skemmtilegu og akaflega merkilegri sogu/upplifun minni med dagmar. Hun issapissadi bara a mig og spurdi af hverju ef hefdi ekki bara farid i eymundsson. Ok, vann eg tar i naestum 2 ar eda hun?? Greinilegt ad eg er ordin utlensk!!

Frabaert! Eg aetla lika ad setja inn 2 tengla med logum sem eiga hug minn allan tessa dagana. Astaeda oskyr. versigjud:


Mer kaemi tad ekki svakalega a ovart ef eg a eftir ad eiga i erfidleikum med ad posta tessari faerlsu en latum okkur bara sja.. siju gaes leiter xx

-tannit-

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 12:42:25 / tintin

Ísland í sumarsins algræna skrúði...

Ég er löngu komin heim. Og ég er með samviskubit yfir því að vera ekki búin að hitta alla og tala við alla og gera allt með öllum. En ég er búin að vera að deleanderizing ef svo má segja. Er búin að njóta þess í botn að vera heima og það er enginn í kringum mig. Þvílíkt frelsi!! 

Nei, ég er samt alveg búin að gera eitthvað smá. Fór til dæmis norður um helgina og hafði það þvílíkt huggulegt hjá evu hómý minni! Takk fyrir mig elskan mín :) Og ég er búin að hitta nokkra hér og þar! Þetta kemur allt með kalda vatninu!

En ég er reyndar að fara aftur út, fer eftir 11 daga til englands... En bróðir minn er að koma heim um helgina þannig að kannski ég sjái hvernig hann er að vinna og ef vinnuplan leyfir höldum við kannski smá 2xheimkomu/semikveðju-partý síðustu helgina í júní.. Watch this space!

Ég er farin að gera eitthvað af viti í góða veðrinu!! Síjú leiter alígeiter. XXX

-tt-


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 15:49:30 / tintin

And let me kiss you...

Jájá, ég er löngu komin til Palma og var rétt í þessu að ljúka mínum síðasta vinnudegi um borð Leander. Skrýtin tilfinning, það verður að segjast!
Lífið er annars búið að vera ljúft hér, mamma og vinkona hennar komu í viku, sem var að sjálfsögðu ósköp ljúft! Var samt að vinna á daginn, en kvöldin voru notuð í smá wining and dining! Og endalaust gott að knúsa mömmu sín!

Svo á morgun kemur Dagmar og við ætlum að eiga saman viku hér í Palma, svona til að enda þetta litla Leander-ævintýri mitt - í bili allavega... Ohhh hvað það verður ljúft...

Svo kem ég heim.. og ætti nú að geta séð flest ykkar fögru fés, því eins og staðan er núna þá er ég ekki að fara beint að vinna :haha: því á fagmáli er ég atvinnulaus!! hahaha! En ég er að hugsa um að stinga af fljótlega aftur....

ást til ykkar allra!
við sjáumst á klakanum, von bráðar!

-tin-


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 18:47:33 / tintin

Hann sigld'utum hofin bla i 17 ar og sjomennsku kunni hann uppa har..

Ekki laust vid tar og sma trega i hjarta, vid kvoddum Antigua i gaer og byrjudum ferd okkar yfir til Evropu. Stoppudum i St. Maarten i dag til ad verlsa sma, held ad tad hafi adallega verid vegna tess ad skipstjorinn vildi versla eitthvad fyrir tolvuna sina. Ja hann ma allt sem hann vill. En vid leggjum aftur af stad uppur 5 eda 6 i dag, sem er eftir ca 4 tima. O my. Karabiska seasonid bara buid.. otrulega margar yndislegar minningar hedan og ja tad er ekki laust vid sma soknud!

En nyjir timar framundan. 10 daga sigling yfir Atlantshafid og tar byrjar nyr kafli. Eg aetla i sma detox!! hahahaha eg kom sjalfri mer allnokkud a ovart tegar eg akvad tad! Sjaum hvernig mer a eftir ad ganga ;)

Eg er flutt i betra og staerra herbergi med gluggum og venjulegri klosetthurd. Ruf a lika heima tar tannig ad vid erum satt :)

Og sma gledifrettir ... eg er buin ad segja upp og eg kem bradum heim! Orugglega margir sem hoppa haed sina af kaeti, tad er eg viss um! Eg mun ekki gera fleiri demantabrot a klosettpappirinn takk!

Jaja, eg a vist ad vera ad vinna nuna en tar sem oskipulagid raedur rikjum her um bord og letin stjornar mer i augnablikinu akvad eg ad skirfa inn nokkrar linur.. tid vitid ta lika ad eg er logd af stad i leidangur. Eins og fillinn hun Nelly. hehe sem minnir mig a..Um daginn het eg Linda og Cilla .. Ruf akvad ad breyta nafninu minu i Linda tvi honum fannst tad hljoma betur vid lobster.. ja eg brann sma a strondinni.. og tegar bossinn var herna um bord, greyid farin ad kalka sma, mundi hann ekki alveg hvad eg heti svo eg sagdi honum tad. En nei, biddu hvernig stafaru tad spurdi hann, sem eg gerdi. Ja eins og songkonan, cilla black? Jaja ef tu vilt. Og neinei tetta voru ekki tungumalaordugleikar eda hreimur sem komu i veg fyrir ad rett nafn kaemist til skila!!

Okei, eg er farin! Ast og elsk til allra eda eins og karabiski madurinn segir, ja mon, peace mon.

xxxxx                          -cilla linda-


» 35 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 19:36:26 / tintin

Og om lidt er kaffen klar...

Takk fyrir kveðjur kæra fólk :) Og já ég má taka til mín skammirnar sem ég gef ykkur fyrir fá komment, því ég er ekki að standa mig í að svara þessum yndislegum kommentum sem ég fæ! Sorry!

Við erum eins og er á Jamaica, erum búin að vera á akkeri fyrir utan Kingston síðustu daga. Erum búin að sigla frá Trinidad & Tobago upp til St Lucia og þaðan til Montserrat og fórum þaðan fyrir á mánudaginn minnir mig og sigldum hingað yfir þar sem við munum skila gestum af okkur í dag!! húrra! Við crewið höfum því miður sem minnst séð af þessum eyjum því öryggisgæslan er í hámarki. Kóngablóð rennur jú í æðum gesta okkar. Hér er kort af karabíska,bara þannig að þið sjáið hvað ég er að tala um ef þið kunnið þetta ekki utan af!  Í vetur höfum við mest verið í Antigua & Barbuda og reyndar British Virgin Islands (BVI's) líka.

Ég sá útlínur og fjöll Venezuela (neðst á kortinu) útum gluggann þegar ég var að þrífa brúnna (the bridge!). Heppin!

Karl bretaprins og frú hans, hún Kamilla, buðu mér í kokteilpartý í gærkvöld uppá aftedecki og að sjálfsögðu þáði ég boðið. Gaman að vera gestur svona einu sinni eftir að hafa þjónað þar nokkrum sinnum! hehe..Þau eru svaka næs! ;) Og svo næs að þau eru búin að bjóða okkur aftur upp á eftir til að kveðja okkur formlega með handabandi!

Annars hef ég það rosa gott. Ég lofa. Og ég kemst auðveldlega í gegnum dagana eins og er því ég er búin að finna gulrótina.. held ég. Ég gæti sosum alveg fundið aðra gulrót, það er alveg líkt mér. En eins og er tek ég bara einn dag í einu og nýt hans eins og ég get. Með Rufusi, sem er ljúft. Það getur meira að segja verið að ég fari að flytja úr litlu líkkistunni minni upp til hans þar sem ég get horft út um lítil kýraugu á sjóinn.. og einsktöku sinnum siðmenningu; fólk, hús, bíla og þess háttar sem að er til þarna úti í gerviveröldinni! Lá í rúminu hans í fyrrakvöld og horðfi á ljósin titra í Kingston. Vá hvað það var flott.

Í kvöld er áætluð sigling tilbaka til Antiuga og við ættum að vera komin þangað á mánudagsmorgun. Gott ef þriðjudagur er svo ekki bara frídagur! Ji, hvað ég ætla að fara á ströndina!

Það styttist í páskana.. hver vill kaupa páskaegg handa mér og geyma í frystinum sínum þangað til ég kem heim?? :haha:


Í fyrrinótt dreymdi mig fyndasta draum .. ég vawr um borð á einhverskonar bát og þarvoru ca 4 strákar að vinna. Þeir voru allir klæddir í hvítt og allt í einu tóku þeir upp kústa og tuskur og allskonar áhöld og byrjuðu að spila lag á þau. Nema hvað, lagið var Vor í Vaglaskógi. Þeir sungu það allt og ég söng það svo allan daginn!  Svo reyndar dreymdi mig þig Andri og ohh hvað ég hlakka til að sjá þig!

Jájá.. ég hafði fullt að segja en man ekki mikið lengur! Sorry!
Vona að allir hafi það gott og ljúft, að lífið leiki við ykkur! Knús knús og kossar í bili lovers!

-tin-

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
MY Leander
Art